Hagvöxtur síðasta árs var 1,3 prósent samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í dag. Gengi hagkerfisins var þó mjög mismunandi eftir ársfjórðungum. Þannig áætlar Hagstofan að hagvöxtur hafi verið rúm þrjú prósent á fyrsta og þriðja ársfjórðungi en að um það bil hálfs prósents samdráttur hafi verið á öðrum og fjórða ársfjórðungi. Einkaneysla dreif hagvöxtinn áfram. Nafnvirði vergrar landsframleiðslu er talið hafa verið 4.956 milljarðar króna. Einkaneysla hafði mest áhrif á hagvöxt en utanríkisviðskipti höfðu neikvæð áhrif.RÚV / Ragnar Visage