Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur Litháum, sem eru sakaðir um tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Þremenningarnir eru sagðir hafa staðið að innflutningi kílós af kókaíni, 85 til 86 prósent að styrkleika, sem samsvarar 95 til 96 prósent af kókaínklóríði.