„Þetta verður bardagi frá fyrstu mínútu,“ sagði landsliðsmaðurinn Tryggvi Hlinason í samtali við Morgunblaðið fyrir leik Íslands gegn Litáen í undankeppni HM í körfubolta sem fram fer í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn er liður í D-riðlinum í fyrstu umferð undankeppninnar en efstu þrjú liðin fara áfram í aðra umferðina.