Fleiri börnum líður vel í skóla en áskoranir eru áfram til staðar

Fleiri börnum líður vel í skóla, dregið hefur úr kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi gegn börnum milli ára og biðlistar eftir meðferðarúrræðum hafa styst verulega. Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu Sambands íslenskra sveitarfélaga um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Samkvæmt niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025, gögnum lögreglu og barnaverndar hefur þeim fækkað sem segjast hafa komið með hníf í skóla. Í skýrslunni segir að áskoranir séu þó enn til staðar. Einelti hafi aukist í 6.bekk og líkamsárásum fjölgað meðal yngstu barnanna, sérstaklega drengja. Þarf að vinna áfram að forvörnum og snemmtækum stuðningi Í stöðuskýrslunni er sett fram heildstæð yfirsýn yfir framvindu aðgerða og eftirfylgni með stöðumati á því hvernig aðgerðaáætlanir í málefnum barna eru að skila sér. Meðal niðurstaðna Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025 er að hlutfall nemenda í 8.bekk sem segist hafa komið með hníf í skóla hefur lækkað úr 3% árið 2024 í 1% árið 2025. Í skýrslunni er tekið fram að mikilvægt sé að stuðla að áframhaldandi jákvæðri þróun með fræðslu og forvörnum. Þrátt fyrir að fleiri börn segjast líða vel í skóla eru áskoranir þó áfram til staðar. Stafrænt ofbeldi og netöfgahópar eru sagðir vaxandi áhyggjuþættir og mikilvægt að tryggja fræðslu. Einnig er bent á að lagarammi þurfi að halda í við örar tæknibreytingar. Einelti hefur aukist meðal nemenda í 6.bekk og líkamsárásum hefur fjölgað meðal yngstu drengja í grunnskólum. Kynntu 25 aðgerðir til að sporna gegn ofbeldi meðal ungmenna Í mars í fyrra kynnti aðgerðahópur vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum aðgerðir til að sporna við neikvæðri þróun. Í tillögum hópsins var lögð áhersla á þverfaglegt samstarf til að takast á við vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna. Aðgerðirnar áttu að ná til lögregluembætta, ráðuneyta, mennta- og heilbrigðisstofnana og Reykjavíkurborgar. Í stöðuskýrslunni nú er tekið fram að sumar aðgerðanna séu þegar komnar í framkvæmd. Af 25 aðgerðum eru 3 sem er að fullu lokið, 2 í innleiðingu, 15 í virkri framkvæmd og 5 í undirbúningi. Meðal helstu áfanga sem eru nefndir eru að Flotinn, vettvangsstarf frístundastarfsfólks, hefur komið af stað formlegu verklagi um samstarf milli sveitarfélaga á suðvesturhorninu. Samfélagslögregla hefur verið efld og henni hefur verið úthlutað frekari fjármunum. Þá hefur samræmdu verklagi verið komið á hjá heilbrigðisstofnunum á öllu landinu ef grunur er um kynferðisbrot gegn barni.