Pakistanski herinn gerði umfangsmiklar loftárásir á Afganistan í nótt, þar á meðal á opinberar byggingar í höfuðborginni Kabúl. Það er mikil stigmögnun í deilu sem staðið hefur yfir lengi. Hingað til hafa árásir milli ríkjanna að mestu hverfst um landamæri ríkjanna og í tilfelli Pakistana, beinst gegn hryðjuverkahópum sem þeir saka Talibana um að hýsa. „Núna er sjónum beint að stjórnvöldum sjálfum,“ segir Michael Kugelman, greinandi hjá hugveitunni Atlantic Council, við BBC. Auk Kabúl gerðu Pakistanar loftárásir á borgirnar Kandahar og Paktika. Árásirnar eru þær þyngstu sem pakistanski herinn hefur gert á Afganistan síðan Talibanar náðu völdum í landinu að nýju 2021. Óljósar fréttir af mannfalli hafa borist. Miðað við umfang árásanna er líklegt að það skýrist betur á næstu klukkustundum. Ríkin tvö hafa háð stríð meðfram landamærum þeirra mánuðum saman, oft með þónokkru mannfalli. Um 140 hafa verið drepnir í skærum síðustu misseri, bæði hermenn og almennir borgarar. Hryðjuverkahópar í báðum löndum blandast inn í flókið og eldfimt ástandið og hafa reglulega framið ódæði, meðal annars í höfuðborgunum Kabúl og Islamabad. Her Talibana gerði árás á landamærastöðvar Pakistana í gær og voru þær sagðar andsvar við fyrri árásum Pakistana. Fjölmörg nágrannaríki, þar á meðal Íranir og Sádar, hafa reynt að miðla málum síðan í nótt og boðist til þess að koma á viðræðum. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvetur til stillingar.