Subterranean kemur saman í fyrsta sinn í ára­tugi

Subterranean kemur saman á sviði í fyrsta sinn eftir áratugahlé á tónleikum Mobb Deep í KR-heimilinu þann 24. mars. Auk þeirra koma fram í upphitun Afkvæmi guðanna, Emmsjé Gauti, Saint Pete og Birnir.