Tóku tillit til áhættu í tilboðinu

„Við vitum ekki hvernig Vegagerðin stillir af sína kostnaðaráætlun. Þarna var boðinn út samningur til fjögurra ára og við erum tiltölulega nýbúnir að vinna útboð til Hafnar í Hornafirði, en í það buðu nokkur flugfélög. Við vorum að horfa til okkar rekstrar í tilboðinu, flugrekstur er flókinn og dýr og krefst flugvéla og fólks og við horfðum til þess. Það væri verulegt tap af þessu ef við værum að bjóða í þetta flug í takt við kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.“