Íris fer ekki aftur í framboð fyrir H-listann í Eyjum

Íris Róbertsdóttir, sem hefur verið bæjarstjóri í Vestmannaeyjum síðustu átta árin, ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs á framboðslista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í vor. Þetta tilkynnti hún á Facebook-síðu sinni klukkan ellefu. „Að vel athuguðu máli hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimey í komandi kosningum og hef ég tilkynnt stjórn félagsins þá niðurstöðu,“ skrifar Íris. „Ég er þakklát og auðmjúk fyrir að hafa fengið tækifæri, í umboði félaga minna, til að starfa sem bæjastjóri Vestmannaeyinga, fyrst kvenna. Þegar kjörtímabilinu lýkur í vor mun ég gera upp þessi átta ár og hlakka til að fara yfir það með ykkur í máli og myndum.“ Fyrir Heimaey varð til sem klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum fyrir bæjarstjórnarkosningar 2018. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fengið 73 prósent atkvæða í kosningum 2014 en missti meirihluta sinn þegar hið nýja framboð fékk þrjá af sjö fulltrúum í bæjarstjórn. Síðan þá hafa Fyrir Heimaey og Eyjalistinn verið saman í meirihluta í bæjarstjórn í tvö kjörtímabil. Fréttin hefur verið uppfærð.