Skólahaldi aflýst þar sem ekki tókst að tryggja öryggi

Foreldrar barna í Ölduselsskóla fengu póst síðdegis í gær um að skólinn yrði lokaður í dag. Ekki þótti hægt að tryggja öryggi nemenda við skólann eftir að samningi við verktaka, sem sinnt hefur framkvæmdum við skólann, var sagt upp. Framkvæmdir við skólann hófust síðasta sumar og áætluð verklok eru í júní. Unnið er að viðgerðum innandyra, við að fjarlægja rakaskemmt byggingarefni í nokkrum rýmum og endurnýja grunnlagnir. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg segir að uppsögnin í gær hafi átt sér nokkurn aðdraganda. Eðli málsins samkvæmt eru einhver ósætti Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar segir að uppsögn á samningi verktakans í gær hafi verið vegna þess að frágangur hafi hvorki uppfyllt gæðakröfur né hæfniviðmið. Verktakanum var sagt upp og í kjölfarið fjarlægði hann öryggisgirðingar og innanhússlokanir á vinnusvæði hans í skólanum. Reykjavíkurborg hefur þegar samið við nýjan verktaka um að ljúka verkinu. Sá verktaki hófst handa í gærkvöldi við að tryggja öryggi á framkvæmdasvæðinu. Skólahaldi var aflýst sökum þess að ekki tókst að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks skólans í tæka tíð. Gert er ráð fyrir að skólahald verði samkvæmt áætlun á mánudag. Guðni Guðmundsson, skrifstofustjóri framkvæmda- og fasteignaþjónustu, segir að uppsögn verktakans hafi átt sér nokkurn aðdraganda. Nokkrar athugasemdir höfðu verið gerðar við frágang á vinnusvæðinu. „Þeir höfðu fengið tækifæri til að bæta úr sínum athugasemdum og svo í framhaldi gert í raun og veru sömu mistök eða sama frágang annars staðar. Og ekki bætt úr því. Þannig að þetta bara snýr að gæðum í verkinu.“ Var fyrri verktaki ósáttur við þessa uppsögn? „Sko ég hef ekki persónulega talað við hann en ég geri fastlega ráð fyrir því. Það er kannski bara eðli málsins samkvæmt, þá voru þetta ákveðin ósætti,“ segir Guðni.