Opnað fyrir skil á skattframtali – Ekki hægt að sækja um frest

Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali á vefsíðu skattsins. Skilafrestur einstaklinga er til 13. mars en fagaðilar hafa lengri frest til að skila. Hægt er að nálgast leiðbeiningar við skil á framtali á vefsíðu Skattsins. Samkvæmt upplýsingum frá skattinum eru 358.543 einstaklingar á skrá yfir þá sem skila eiga framtali. Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri hjá Skattinum, segir að skil fari yfirleitt rólega af stað og að fleiri skili sínu framtali þegar nær dregur síðasta skiladegi. Á síðasta ári hafi hins vegar 9.300 einstaklingar skilað á fyrsta degi. Fari svo að fólk nái ekki að skila áður en skilafrestur rennur út eigi fólk einfaldlega að reyna að skila sem fyrst til þess að komast hjá því að skattur sé áætlaður.