Sigur Græningja í aukakosningum enn annað reiðarslag fyrir Keir Starmer

Hannah Spencer, 36 ára pípari, er nýr þingmaður Gorton og Denton-kjördæmis Manchester-borgar eftir aukakosningar í gær. Þingmaður kjördæmisins, Andrew Gwynne úr Verkamannaflokki, sagði sæti sínu lausu vegna heilsufarsástæðna í byrjun árs. Þetta er fyrsti sigur Græningja í aukakosningum til þings í sögu flokksins. Græningjar hafa sótt mjög í sig veðrið að undanförnu undir stjórn leiðtogans Zack Polanski. Hann segir að kjósendur vilji annan valkost en Verkamannaflokkinn á vinstri ás breskra stjórnmála. Spencer fékk ríflega 40% atkvæða og Umbótaflokkurinn tæp 29%. Frambjóðandi Verkamannaflokksins fékk rúman fjórðung. Það eru skelfilegar niðurstöður fyrir Verkamannaflokkinn sem hefur átt þingmann í kjördæminu frá 1931 eða í 95 ár. „Þessi niðurstaða verður að vekja fólk til umhugsunar,“ segir Angela Rayner, fyrrverandi varaforsætisráðherra í ríkisstjórn Keirs Starmers. Eftir að þeim sinnaðist hefur hún orðið að einum harðasta gagnrýnanda forsætisráðherrans. Staða Starmers versnar og versnar Stjórnmálaskýrendur í Bretlandi segja að tapið í Gorton og Denton sé mikið reiðarslag fyrir Starmer. Nú þurfi hann bæði að eiga við uppgang Umbótaflokks Nigels Farage á hægri vængnum og sífellt betra gengi Græningja á vinstri vængnum. Þá eru þingmenn Verkamannaflokksins margir orðnir mjög önugir með forystu Starmers. Þeir saka hann um að hafa tekið eigin hagsmuni framyfir hagsmuni flokksins í kosningunum í gær. „Tap Verkamannaflokksins er algjörlega á ábyrgð Keirs Starmer og klíku hans,“ segir Richard Burgon, þingmaður flokksins. Starmer er sagður hafa valið annan frambjóðanda í stað Andys Burnham, sem sagður var mun sigurstanglegri. Sá er borgarstjóri Manchester, fyrrverandi ráðherra og þykir geta skákað Starmer sem leiðtogi flokksins. Hann hefur tvisvar áður boðið sig fram í leiðtogakjöri en ekki haft sigur. Þegar hneykslið vegna Peters Mandelson, þungavigtarmanns í Verkamannaflokknum, og tengsla hans við Jeffrey Epstein voru í hámæli fyrir örfáum vikum var því slengt fram að mögulega yrðu dagar Starmers í embætti senn taldir. Þann storm virðist Starmer hafa staðið af sér að mestu. Með sögulegu tapi í Gorton og Denton hrannast óveðursskýin þó upp að nýju.