Stór­lið mætast í 16-liða úr­slitum Meistara­deildar Evrópu

Dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu við hátíðlega athöfn í Sviss í dag. Manchester City mætir Real Madrid í stórleik umferðarinnar og Chelsea mætir Evrópumeisturum PSG. Arsenal og Liverpool gætu hugsað sér gott til glóðarinnar.