Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, segir starfsfólki sendiráðsins að halda heim strax í dag, ætli það sér að flýja land á annað borð. New York Times greinir frá. Í tölvupósti til starfsmanna sendiráðsins segir að viðbúnaðarstig hafi verið fært upp og nú sé því starfsfólki sem ekki er í framlínunni frjálst að fara. Þetta er gert þegar þjóðaröryggi Bandaríkjanna er ógnað eða þegar lífshætta steðjar að starfsfólki sendiráða. Hernaðarviðbúnaður Bandaríkjanna í grennd við Íran hefur margfaldast síðustu vikur og talið er að til átaka komi á næstunni. Ísrael yrði að skotmarki Írana ef svo fer að Bandaríkjaher ráðist til atlögu. Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael.EPA / ABIR SULTAN