Þjóðvegurinn vestan við Hellu, við Lyngás, er lokaður vegna umferðarslyss. Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við fréttastofu að talið sé að tveir séu slasaðir eftir árekstur tveggja bíla. Þjóðvegurinn verður lokaður þar til vinnu er lokið á vettvangi.