Sundurtættir lestarvagnar á sýningu í Kyiv

Það var komið fram undir kvöld á þriðjudaginn síðasta í Kyiv, þegar íslenska sendinefndin kom á lestarstöðina í borginni; reiðubúin til að stíga um borð í lestina áleiðis til Póllands. En það var eitt verkefni eftir; einn af yfirmönnum Ukrzaliznytsia, úkraínska lestarfyrirtækisins, bauð Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að koma og skoða glænýja sýningu sem opnuð var á mánudaginn - í tæka tíð fyrir heimsókn þessa hóps þjóðarleiðtoga sem komu til Kyiv á þriðjudaginn í tilefni þess að þá voru fjögur ár liðin frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Inngangurinn á sýninguna lét ekki mikið yfir sér; einfalt stálhlið á vegg á móti bílastæðinu fyrir framan lestarstöðina - en það sem blasti við fyrir innan var áhrifamikið. Þrír lestarvagna standa þar á teinum; sá fyrsti er sundurtættur farþegavagn, sem lítur út eins og hann hafi opnaður með dósahníf, eða tættur í sundur af einhverri ófreskju í bíómynd. Sá vagn var hluti af lest sem var á Chop-Barvinkove línunni, með endastöð í Barvinkove, sem er lítill bær í Kharkiv héraðinu í austurhluta Úkraínu. Eins og fram hefur komið í úkraínskum fjölmiðlum, var komið undir kvöld þegar rússneskir sprengjudrónar voru sendir að lestinni; á sama tíma stóð yfir árás á Barvinkove. „Þessi vagn var númer fimm í lestinni, þannig að það er ljóst að þeir voru ekki að reyna að lama dráttarvagninn,“ sagði Oleksandr Pertsovsky, einn stjórnenda lestarfyrirtækisins við úkraínska fjölmiðilinn Suspilne , daginn sem sýningin var opnuð. Næstum þrjú hundruð manns voru um borð í þessari lest þegar árásin var gerð, síðdegis þriðjudaginn 27. janúar. Þrír létust í árásinni og minnst tveir særðust. Það var langur dagur að baki hjá íslensku sendinefndinni sem var í Kyiv þennan þriðjudag - en þessi síðasti viðburður, heimsóknin á þettta safn, var þess virði að skoða. Úkraína er stórt land og lestarsamgöngur hafa alltaf verið mikilvægar til að komast á milli borga og svæða í landinu; ástandið sem verið hefur síðan Rússar hófu allsherjarinnrás sína vorið 2022 hefur aukið á mikilvægi þessara samgönguinnviða, enda hefur farþegaflug legið niðri frá því daginn sem allsherjarinnrásin hófst, 24. febrúar 2022. Lestarkerfið gegnir líka lykilhlutverki í samskiptum Úkraínu við erlend ríki; eina leiðin fyrir þjóðarleiðtoga til að heimsækja Kyiv er jú með lestinni frá Póllandi. Samkvæmt upplýsingum sem koma fram á sýningunni hafa Rússar gert 4774 árásir á lestarkerfið í Úkraínu síðan í febrúar 2022 og skemmt eða eyðilagt næstum þrjú hundruð lestarvagna - næstum tólf hundruð árásir voru gerðar í fyrra. Við upphaf sýningarinnar á mánudaginn sagði Pertsovsky að um þúsund starfsmenn hefðu látist í þessum árásum á lestarkerfið. Á sýningunni er einnig að finna farþegavagn sem breytt hefur verið í bráðadeild, til að flytja særða hermenn frá víglínunni; settur þarna til að sýna hvernig hlutverk lestarkerfisins hefur breyst eftir allsherjarinnrás Rússa. Í samtalinu við Suspilne sagði Pertsovsky að þessi hugmynd hefði fæðst eftir að lestarstarfsmenn sáu þegar særðir hermenn voru settir inn um glugga á venjulegum lestarvögnum. Svo var kominn tími til að kveðja; framundan var níu tíma lestarferð um myrkvaðar sveitir Úkraínu og áleiðis yfir landamærin til Póllands.