Jesse Lingard er sagður á leið aftur út á völl og gæti gengið til liðs við brasilíska stórliðið Corinthians. Lingard, sem er 33 ára gamall, hefur verið án félags síðan hann yfirgaf suðurkóreska liðið FC Seoul í desember. Þar skoraði hann 19 mörk í 67 leikjum, en hefur nú verið félagslaus í rúma tvo mánuði. Lesa meira