Kolbeinn Rastrick skrifar: Hefur þú velt því fyrir þér hvort þú gætir komist af á eyðieyju? Og hefur þú í kjölfarið velt því fyrir þér hverjir af þeim sem þú þekkir gætu alls ekki komist af á eyðieyju? Þetta eru grundvallarspurningar í nýjustu mynd leikstjórans Sam Raimi, Sendið hjálp eða Send Help . Raimi á að baki feril í kvikmyndageiranum sem spannar nær hálfa öld. Margir þekkja eflaust Spider-man þríleik hans sem skartar Tobey Maguire í hlutverki titilhetjunnar. Hann er þó hvað þekktastur fyrir Evil Dead þríleikinn og þá sérstaklega Evil Dead 2 sem er ein af áhrifamestu hryllingsmyndum 9. áratugarins. Í Sendið hjálp kynnumst við hinni duglegu og jákvæðu en vandræðalegu Lindu sem starfar á skrifstofu ráðgjafafyrirtækis. Hún á erfitt með að vingast við samstarfsfélaga sína sem finnst hún vera skrítin og fráhrindandi. Hún heldur þó í vonina um að geta klifið metorðastigann innan fyrirtækisins þar sem forstjórinn hafi lofað henni betri stöðu. Þegar hann andast og sonur hans, Bradley, tekur við keflinu býst hún við því að hann efni loforð föður síns. Þegar hann mætir skyndilega á skrifstofuna rýkur hún því upp frá skrifborðinu sínu til að kynna sig fyrir honum. En hún gleymir því miður að þurrka hálfa túnfisksamloku framan úr sér og það er það eina sem hann tekur eftir við þessi fyrstu kynni þeirra. Því fer fjarri að hann ætli að veita þessari klaufalegu konu stöðuhækkun. Linda er samt sem áður einn duglegasti starfsmaður fyrirtækisins og aðstoðarmaður Bradleys hvetur hann því til þess að taka hana með á fund í Bangkok. Bradley tilkynnir því Lindu með hæðnistón að hún geti komið með til Bangkok og þar með sannað sig; kannski detti honum þá í hug að framfylgja ósk föður síns. Einkaflugvél fyrirtækisins tekur því á loft með Lindu, Bradley og þrjá aðra karla úr fyrirtækinu um borð. Lúxus flugvélarinnar nær þó ekki til flugferðarinnar sjálfrar og heljarinnar stormur verður til þess að flugvélin hrapar í hafið. Lindu og Bradley, einu eftirlifendum þessara hrakfalla, skolar á land á lítilli eyju úti á ballarhafi. Og eins og Linda segir við Bradley þar sem hann liggur þjáður undir laufskýli sem hún byggði, þá eru þau ekki lengur á skrifstofunni. Sendið hjálp er gamanhryllingsmynd og þar sem hún fjallar um tvo karaktera sem eru staðsettir á sama staðnum nær alla myndina veltur mikið á því að þeir séu í höndum hæfra leikara. Með hlutverk Lindu fer Rachel McAdams sem er hvað þekktust fyrir Eurovision-myndina, The Notebook , About Time og auðvitað hlutverk sitt sem Regina George í Mean Girls . Með hlutverk Bradleys fer Dylan O’Brien sem varð frægur fyrir hlutverk sitt sem Stiles í sjónvarpsþáttunum Teen Wolf og Thomas í Maze Runner- þríleiknum. Þetta dúó er algjörlega stórkostlegt í Sendið hjálp . Linda í færum höndum McAdams er sterk og úrræðagóð á sama tíma og hún kallar fram kjánahroll og hlátur með því hvernig hún lætur á köflum. Hún virkar eins og raunveruleg persóna frekar en einhver skrípaleikur, þökk sé McAdams. Bradley hefði aftur á móti getað orðið að of raunverulegum, leiðinlegum, ríkum fávita en kómískir taktar O’Briens upphefja persónuna. Það verður því aldrei þreytt að fylgjast með hinum aumkunarverða og ósjálfbjarga Bradley vera fúll á móti gagnvart hinni næstum óbærilega jákvæðu orku Lindu sem blómstrar á eyjunni. Þótt þetta dúó verði aldrei þreytt þýðir það samt sem áður ekki að myndin sjálf blómstri. Það sem háir Sendið hjálp aðallega er umgjörðin í kringum þetta dúó. Þau sem hafa séð mynd Ruben Östlund frá árinu 2022, Triangle of Sadness , fara eflaust að klóra sér í hausnum um miðbik Sendið hjálp og hugsa að þau kannist nú eitthvað við framvinduna. Því má nú þó halda til haga að fyrst var tilkynnt um að Sendið hjálp væri í vinnslu árið 2019, þá lýst sem Misery mætir Cast Away . Sama hvort áhorfendur hafa séð þessar myndir eða ekki er þó óneitanlega lítið sem kemur á óvart í Sendið hjálp . Það á bæði við um aðstæðurnar og persónurnar. Linda elskar að vera á eyjunni og vill halda því áfram, Bradley hatar að vera á eyjunni og vill komast burt. Allar ákvarðanir mótast af því og í þau fáu skipti sem þau þurfa að taka þær þá er augljóst hvað mun verða fyrir valinu. Handritshöfundar myndarinnar eru Damian Shannon og Mark Swift en þeir skrifuðu endurgerðina af Friday the 13th frá árinu 2009, Freddy vs. Jason frá 2003 og Baywatch- myndina frá 2017. Þetta má varla kalla framúrskarandi feril og það er augljóst að það sem er jákvætt við Sendið hjálp er ekki þeim félögum að þakka. Rétt eins og í Triangle of Sadness er eyðieyjan hinn fullkomni staður til þess að velta upp spurningum um vald og valdatengsl samfélagsins, sem karakterarnir eru orðnir viðskila við. Í Sendið hjálp er þó ekki farið lengra í pólitískri greiningu en svo að sýna að Bradley hefur aldrei unnið handtak og á því ekki skilið að vera forstjóri á meðan Linda er útivistargarpur og þess vegna dugleg. Myndin er langt frá því að vera hárbeitt gagnrýni á kerfið. Á meðan Ruben Östlund er þekktur fyrir pólitískar skopstælingar sínar er Sam Raimi það aftur á móti ekki og það er bara í fínasta lagi. Styrkur hans liggur í því að blanda saman hryllingi og húmor. Hann er, og hefur alltaf verið, upp á sitt besta þegar hann fer í ýktar áttir og það er ýmislegt í Sendið hjálp sem staðfestir hvað hann er skemmtilegur leikstjóri. Fötur af líkamsvessum vella upp úr persónum myndarinnar og til að mynda í einu atriði með villigelti fær Linda ítrekað yfir sig hor og blóð. Þau atriði eima af bæði Evil Dead þríleiknum og hinni æðislegu mynd hans Drag me to Hell frá árinu 2009. Þó að það séu atriði í myndum hans sem dansa á línunni upp á að ganga fram af áhorfendum, eins og eitt sérstaklega minnisstætt atriði í Sendið hjálp með rottu, virðist þó aldrei sem Raimi vilji láta þá þjást. Hryllingurinn á jú að vera ógeðslegur eða ógnvekjandi en samt sem áður líka skemmtilegur. Annað sem einkennir myndir Raimis er svo klippingin og kvikmyndatakan en í Sendið hjálp hefur hann fengið með sér í lið þá Bob Murawski og Bill Pope sem hafa báðir unnið að flestum myndum hans. Það er sérstaklega skemmtileg myndflétta, eða montage, snemma í myndinni þar sem Bradley situr á ströndinni eftir að Linda skilur hann þar einan eftir fyrir að vera dónalegur. Myndavélin færist frá vinstri til hægri aftur og aftur á meðan tíminn líður og hinn hrokafulli Bradley verður örvæntingarfyllri og pirraðri með hverju skoti. O’Brien tekst þar einnig að upphefja atriðið úr því að vera tragískt yfir í kómískt. Annar fastagestur í myndum Raimis, tónskáldið Danny Elfman, samdi tónlistina fyrir Sendið hjálp . Hann hefur samið tónlistina fyrir ógrynni mynda, þar á meðal fyrir flestar myndir leikstjórans Tims Burtons, og það er algjör 10. áratugar bragur á tónlistinni sem ómar í gegnum Sendið hjálp . Sama á við um myndina sjálfa, það er eitthvað retró við hana. Hlutir eins og skrifstofustemningin, einn karakter myndarinnar er klæddur eins og Bill Lumbergh í Office Space . Tónlistin eftir Danny Elfman. Zoom-skot og fade-out kvikmyndatökunnar og klippingarinnar. Hugmyndin sjálf um Misery og Cast Away í eina sæng. Myndin virðist hafa verið föst á eyðieyju síðan um aldamótin. Sendið hjálp er þó síður en svo byggð á veikum grunni. Nær öll sem komu að gerð myndarinnar eru fagfólk. Allir leikararnir, og þá sérstaklega McAdams og O’Brien, eru brilljant í sínum hlutverkum. Stílbragð Raimis gefur myndinni sjarma og orku sem gerir hana að fínasta skemmtiefni í gegn. Það er bara miður að myndin fari ekkert lengra en hún gerir og er þar slöppu handriti um að kenna. Það hversu litlu er úr að moða sannar samt bara að Raimi er greinilega enn þá með þetta. Þá er bara að vona að handritshöfundarnir Shannon og Swift batni eitthvað fyrir næstu mynd sem þeir eru sagðir vera að undirbúa með Raimi, endurgerð á myndinni Magic frá 1978. Fínasta skemmtiefni en fer nógu langt, segir Kolbeinn Rastrick, gagnrýnandi Lestarinnar á Rás 1 um Send Help. Sam Raimi leikstýrir með glæsibrag að mati Kolbeins en slappir handritshöfundar skyggja á heildarmyndina. Kolbeinn Rastrick flutti pistilinn í Lestinni á Rás 1. Kolbeinn hefur lokið meistaranámi í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands og unnið fyrir kvikmyndahátíðirnar RIFF og Stockfish.