Páll verður ráðuneytisstjóri

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Pál Winkel í embætti ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu. Páll var forstjóri Fangelsismálastofnunar um sextán ára skeið en hefur síðustu tvö árin starfað sem sérfræðingur í tveimur ráðuneytum og verið framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna. Þar áður var hann lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna og aðstoðarríkislögreglustjóri. Sex sóttu um embættið. Páll Winkel þegar hann var forstjóri Fangelsisstofnunar.RÚV / Ólafur Göran Ólafsson Gros