Þingmenn Samfylkingarinnar héldu opinn fund í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í gærkvöldi. Var fundurinn liður í ferðum alþingismanna um landið í kjördæmavikunni. Ófærð setti strik í reikninginn þar sem nokkrir þingmenn komust ekki til fundarins. Nokkrir komu vestur með Breiðafjarðarferjunni Baldri en þegar komið var að Dynjandisheiði í gærdag var heiðin ófær og urðu ferðalangarnir frá […]