Meðal helstu tillagna í skýrslu starfshóps um aðgerðir til að efla strandsiglingar með vörur, sem afhent var Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra í gær, undir yfirskriftinni Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til? er að öll kolefnisgjöld af reglubundnum strandsiglingum verði lögð af þar til komnar eru raunhæfar lausnir til orkuskipta í siglingum stærri skipa.