Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“

Starfsfólk Ölduselsskóla hafði allt frá því í ágúst gert athugasemdir við starfshætti verktakans sem sá um framkvæmdir og endurbætur á skólanum eftir að mygla kom þar í ljós síðasta vor. Svo virðist sem ekki hafi verið hlustað fyrr en sauð upp úr í vikunni og verktakanum var sagt upp í viðurvist starfsfólks.