Icewear Garn opnar í Kringlunni

Icewear Garn hefur opnað nýja verslun á 2. hæð í Kringlunni. Þetta er fyrsta sérhæfða garnverslunin í Kringlunni og markar nýjan og ferskan kafla í heimi hannyrða í verslunarmiðstöðinni.