„Loksins getum við sagt frá,“ segja Lilja Sigurðardóttir og Satu Rämö glæpasagnahöfundar sem hafa tekið höndum saman og skrifa nú glæpasöguna sem fær heitir Villi korti, eða Wild Card á ensku, en íslenska heitið liggur ekki fyrir. Bókin er kynnt sem upphaf á bókaflokki sem mun heita Reykjavíkurmorðin. Fyrsta bókin kemur út hjá bókaútgáfunni WSOY í Finnlandi vorið 2027 og Forlaginu síðar sama ár, er kemur fram í tilkynningu Satu á samfélagsmiðlum. Lilja greinir frá á sínum miðlum að það sé sérstaklega gaman að skrifa með vinkonu sinni og að þær hafi smellpassað saman. „Við erum dauðspenntar fyrir þessu.“ Lilja Sigurðardóttir og Satu Rämö segja það frábært að vinna með svo góðri vinkonu.RÚV / Samsett mynd