25 milljón króna styrkur vegna fósturbarna í Bakkakoti

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu forsætisráðherra að veita Landspítala 25 milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu til stuðnings við einstaklinga sem vistaðir voru sem fósturbörn í Bakkakoti. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins . Ríkisstjórnin bað Landspítala um að taka að sér að meta þjónustuþörf hóps einstaklinga sem vistaðir voru í Bakkakoti sem fósturbörn. Samhliða verði þeim veittur sálrænn stuðningur þar sem minningar um þungbæra reynslu í bernsku hafa verið kallaðar fram upp á síðkastið. Fjárstyrkurinn er veittur á grundvelli ákvörðunar ríkisstjórnarinnar frá 6. febrúar vegna mála sem tengjast Bakkakoti. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fundaði 5. febrúar með þremur af níu mönnum sem sendu kröfu á stjórnvöld og vildu að málið yrði rannsakað og að þeir fengju bætur. Lögmenn mannanna voru einnig á fundinum. Einn maður bættist síðan í hóp mannanna níu. Áfram er unnið að öðrum þáttum, frumvarpi um rannsóknarnefnd vegna Bakkakots, frumvarpi um almennar sanngirnisbætur og úttekt á núverandi eftirliti með fósturheimilum.