Of­beldi er ekki starfs­lýsing

Nýverið voru kynntar niðurstöður á þingi Félagsráðgjafafélags Íslands sem hljóta að vekja ugg hjá öllum þeim sem bera ábyrgð á skipulagi, fjármögnun og stjórnun velferðarþjónustu í landinu. Þar kom fram að 94% félagsráðgjafa hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi í starfi. Hótanir og niðrandi framkoma eru því ekki einangruð tilvik eða óheppileg frávik, heldur hluti af daglegu starfsumhverfi fólks sem sinnir lögbundinni þjónustu í þágu almennings.