Tafir á þjóðvegi eitt vegna tveggja umferðaróhappa

Umferðartafir eru á þjóðvegi eitt við Hellu vegna tveggja umferðarslysa. Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við fréttastofu að fyrra óhappið hafi orðið vestan við Hellu um hádegi. Þrír lentu þar í árekstri tveggja bifreiða, einn var fluttur á bráðamóttökuna í Fossvogi en tveir til skoðunar á heilbrigðisstofnun Suðurlands. Seinna óhappið varð um klukkan tvö. Þrír farþegar voru í bíl sem valt og endaði utan vegar. Meiðsli þeirra reyndust minni háttar. Mynd af vettvangi bílveltunnar.Aðsend