Prince Polo, var tákn­mynd spillingar kommún­ismans í Evrópu

Undirrituðum varð það einu sinni á að gefa pólskum vinum mínum í Svíþjóð kassa af Prince Polo, sem ég fékk sendan frá Íslandi. Ég geri það ekki aftur að óathuguðu máli. Ekki eru allir Pólverjar yfir sig hrifnir af þessu annars ágæta kexi, og liggja þar að baki gildar sögulegar ástæður.