Ekki vandað vel til verka við val á staðsetningu unglingaskóla

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir þá ákvörðun að byggja skyldi unglingaskóla á svonefndu Þríhyrningssvæði í Laugardalnum hafa verið tekna í fljótfærni þar sem lóðin sé á umráðasvæði Knattspyrnufélagsins Þróttar. „Fyrri borgarstjóri lagði það til og lagði mikla áherslu á þetta,“ segir Heiða og vísar til Einars Þorsteinssonar, fyrrum borgarstjóra. „Hann taldi það að svo væri ekki, að Þróttur ætti ekki þennan rétt,“ segir Heiða Björg Borgarráð samþykkti í gær að falla frá fyrirætlunum um uppbyggingu á svæðinu að tillögu Heiður Bjargar. Ástæðan var álit borgarlögmanns á að samkomulag borgarinnar við Knattspyrnufélagið Þrótt um afnot af svæðinu frá 1996 væri enn í gildi. „Ég held að þarna hafi bara ekki verið vandað nægilega til verka“ Áfram standi þó til að byggja skólann en óvíst sé hvar hann verður staðsettur. „Við munum bara fara yfir fyrri staðarvalsgreiningu og einnig kalla eftir hugmyndum frá fólki um hvar svona skóli væri best niðurkominn,“ segir Heiða Björg. Fyrri möguleikar ekki eins fýsilegir Þrjú svæði voru til skoðunar fyrir skólann á sínum tíma og var þríhyrningurinn eitt af þeim. Annað var nærri Glæsibæ við Suðurlandsbraut en Heiða Björg segir að íbúar hafi almennt ekki verið spenntir fyrir þeirri staðsetningu. „Síðan var verið líka að horfa á fyrir framan Laugardalsvöllinn. Þar er reyndar komið skólaþorp. Þannig að ég held að sú staðsetning sé ekki mjög vænleg núna,“ segir hún. Byggt verði á þeirri skýrslu sem starfshópur skilaði til Reykjavíkurborgar árið 2023.