„Ég heiti Barbí...punktur“

Á hverju ári setur nemendafélagið í Verzlunarskóla Íslands upp söngleik í íþróttahúsi skólans. Í ár var ákveðið að setja upp söngleikinn Barbí. Söngleikurinn byggir á samnefndri kvikmynd frá 2023 og segir frá hinni „stöðluðu-steríótýpu-Barbí“ sem ferðast frá Barbílandi til raunheima til að finna sjálfa sig. Krakkafréttir tóku viðtal við sjálfa Barbí, sem Sunneva Rán Steingrímsdóttir leikur. Höskuldur Þór Jónsson leikstýrir verkinu. Það er aldrei að vita nema Ken láti sjá sig?