Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og oddviti H-listans, Fyrir Heimaey, ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Þetta staðfestir Íris í samtali við fréttastofu. Íris segist þó ekki ætla í prófkjör fyrir flokkinn í vor, en framboðsfrestur hjá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum rann út klukkan sex í kvöld. Félagsfundur Fyrir Heimaey var haldinn í hádeginu, þar sem ákveðið var að félagið bjóði ekki aftur fram. Fyrir Heimaey varð til sem klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum fyrir bæjarstjórnarkosningar 2018. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fengið 73% atkvæða í kosningum 2014 en missti meirihluta sinn þegar hið nýja framboð fékk þrjá af sjö fulltrúum í bæjarstjórn. Síðan þá hafa Fyrir Heimaey og Eyjalistinn verið saman í meirihluta í bæjarstjórn í tvö kjörtímabil. En er búið að semja við þig um að þú verðir bæjarstjóraefni? „Nei, en ef til þess kæmi, þá tæki ég afstöðu til þess á þeim tíma,“ segir Íris. Hún segir að mikið hafi þó gerst frá því í hádeginu. Fólk sem var með henni í framboði fyrir H-listann sé búið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. „Og ég mun ganga í flokkinn og styðja gott fólk í komandi prófkjöri.“ Útlit er fyrir oddvitaslag í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Eyþór Harðarson, oddviti flokksins, sækist eftir fyrsta sætinu. Það gerir líka Trausti Hjaltason. Hann var bæjarfulltrúi þegar flokkurinn var síðast í meirihluta í bæjarstjóratíð Elliða Vignissonar.