Segist ekki hafa haft neina hugmynd um glæpi Epstein

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segist ekki hafa haft neina hugmynd um glæpi kynferðisbrotamannsins og barnaníðingsins Jeffreys Epsteins. Hann ber vitni fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um samband sitt við hann en vitnaleiðslan er fyrir luktum dyrum. Í yfirlýsingu sem hann las við upphaf vitnaleiðslunnar segist hann ekki hafa séð neitt rangt né gert neitt rangt. „Ég veit hvað ég gerði, og það sem er mikilvægara, ég veit hvað ég gerði ekki. Ég sá ekkert og gerði ekkert rangt.“ Clinton átti í samskiptum við Epstein og flaug nokkrum sinnum með einkaflugvél hans eftir að hann lét af embætti sem forseti. Það var áður en Epstein var sakfelldur fyrir mansal og kynferðisbrot gegn stúlku undir lögaldri. Eiginkona Clinton, Hillary, bar vitni í gær. Hún sagðist aldrei hafa hitt Epstein og sagði eiginmann sinn ekki hafa vitað af glæpum hans. Clinton gagnrýndi í yfirlýsingunni í dag að eiginkonu sinni hafi verið gert að bera vitni. „Hún hafði ekkert með Jeffrey Epstein að gera. Ekkert. Hún man ekki einu sinni eftir að hafa hitt hann.“ Hann bætti við að hann hafi alist upp við heimilisofbeldi og sagðist aldrei hafa flogið með flugvél Epstein ef hann hefði haft einhverja hugmynd um glæpina sem hann framdi. „Ég hefði gefið mig fram við lögreglu sjálfur.“ Clinton sagði Epstein hafa falið glæpi sína vel fyrir öllum í langan tíma. Það hjálpi ekki að láta hann fara í hlutverk rannsóknarlögreglumanns 24 árum síðar. Clinton-hjónin hafa ítrekað kallað eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði látinn bera vitni um kynni sín af Epstein.