Verktakinn ætlar að krefjast skaðabóta

Reykjavíkurborg sleit samningi við verktaka sem vann að framkvæmdum í Ölduselsskóla fyrirvaralaust á miðvikudag. Skólinn var lokaður í dag þar sem starfsfólk treysti sér ekki til að vinna við þær aðstæður sem sköpuðust og fimm hundruð börn sátu heima. Borgin hefur þegar samið við nýjan verktaka um að ljúka verkinu. Lögmaður HH Húss verktaka segir að verkslit Reykjavíkurborgar hafi komið gjörsamlega að ófyrirsynju. Þegar litið sé til fundargerða um verkefnið verði ekki séð að það verði réttlætt með neinum hætti að slíta samstarfi án lögmætrar ástæðu og víkja þeim af verkstað. Þetta muni óhjákvæmilega tefja verklok. Verktakinn hyggist leita réttar síns og krefjast skaðabóta. Samningi slitið í viðurvist starfsfólks skólans Eftir að mygla fannst í skólanum í fyrravor var ráðist í miklar framkvæmdir og verkefnin fóru vaxandi eftir því sem fram leið. Það var svo í fyrradag sem Reykjavíkurborg sleit samstarfi við verktakann, HH Hús, sem hætti samdægurs, og fjarlægði í framhaldinu girðingar og annan öryggisbúnað. „Það sem að var verst í því öllu saman var að upplýsingagjöfin var ekki nægilega góð og eðlilega við það skapast mikil óvissa,“ segir Guðni Guðmundsson, skrifstofustjóri framkvæmda- og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg sleit samstarfi við verktaka í Ölduselsskóla sem hætti samdægurs og fjarlægði allan öryggisbúnað. Verktakinn ætlar að leita réttar síns og krefjast skaðabóta. Fram kemur í frétt Vísis að embættismenn á vegum Reykjavíkurborgar og fulltrúar verktakans hafi hnakkrifist í viðurvist starfsfólks skólans. „Fundurinn fór fram í viðurvist kennara sem voru inni á kennarastofu sem var mjög óheppilegt og skildi þau eftir með eitt stórt spurningarmerki, hvað væri um að vera. Það var mjög óheppilegt að málunum hafi verið komið fyrir á þennan máta,“ segir Guðni. En hvað var það sem steytti á varðandi þennan framkvæmdaraðila? „ Ég kann ekki að fara nákvæmlega með tæknileg atriði í því samhengi,“ segir Guðni. „Meðal annars að hér voru ekki rétt menntaðir aðilar í réttum störfum og það komu upp hérna eftir mínum bestu upplýsingum atriði, sem var búið að benda á oftar en einu sinni og tvisvar, sem að ekki var brugðist nægilega vel við og það endaði með því að við sáum okkur ekki fært að halda áfram þessu samningssambandi við viðkomandi.“ Búið að fjarlægja allt mygluskemmt efni Starfsmenn Ölduselsskóla sendu frá sér ályktun þar sem þeir sögðust ekki treysta sér til að vinna við þessar aðstæður sem þeir telja hættulegar og heilsuspillandi. Foreldrar barna í skólanum fengu póst síðdegis í gær þar sem þeim var tjáð að skólinn yrði lokaður þar sem ekki væri hægt að tryggja öryggi nemenda. Til stendur að skólastarf hefjist á ný á mánudag. Starfsfólk lýsti einnig áhyggjum af því að þegar öryggisbúnaður var fjarlægður hefðu myglugró og önnur heilsuspillandi mögulega getað dreift sér um skólann. Guðni telur ekki hættu á því. „Nei, eftir mínum bestu þá var búið að fjarlægja allt mygluskemmt efni og þetta er fyrst og síðast framkvæmdarryk sem fer hér um.“