Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefur verið samþykktur. Hann var kynntur í dag en fundur fulltrúaráðs félagsins var í gær í félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Kjarna. Listinn tekur mið af prófkjöri flokksins sem haldið var í janúar. Hilmar Gunnarsson ritstjóri leiðir listann en hann sigraði í prófkjöri flokksins með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða eða 91,9%. Í öðru sæti er Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og í því þriðja er Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari. Fjórða sætið skipar Hjörtur Örn Arnarson, landfræðingur, og í fimmta sæti er Þórarinn Örn Andrésson framkvæmdastjóri.