Átak gegn vöruskerðingu í matvöruverslunum

Með nýjum lögum í Austurríki er ætlunin að berjast gegn því sem á ensku er kallað „shrinkflation“ – eða vöruskerðing. Það er þegar framleiðendur minnka vöru en selja hana á sama verði eða jafnvel á hærra verði en áður. Frá og með 1. apríl þarf að merkja vörur sérstaklega í 60 daga ef þær hafa verið minnkaðar en verðið ekki lækkað að sama skapi. Viðurlög eru sektir að upphæð sem jafngildir allt að tveimur milljónum íslenskra króna. Í sumum verslunum er þegar byrjað að merkja vörur sem framleiðendur hafa minnkað en eru samt seldar á sama verði og áður.