Stöðu- og framvindupróf lögð fyrir grunnskólabörn á næstu vikum

Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi. Krakkar í 4.-10. bekk þreyta prófin sem eru rafræn. Sigurrós Eiðsdóttir er kennari í Melaskóla og umsjónarkennari í 5. S.E. Hún segir prófið leggjast vel í nemendur og kennara. „Mínir nemendur eru náttúrulega bara á þeim aldri að þau hafa aldrei tekið svona próf. Og það að taka próf í tölvu er líka pínu skrýtið finnst þeim. Það er ákveðin kúnst að taka svona próf þannig að það er líka eitthvað sem við erum búin að vera að kynna fyrir þeim.“ Einkunnir verða gefnar í prósentum – ekki bókstöfum Einkunnir munu liggja fyrir í maí og verða í prósentum, sem er nýlunda þar sem bókstafabil hafa verið ráðandi síðustu árin. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu, segir að prófin verði lögð fyrir yfir fjögurra vikna tímabil og þeir fyrstu taka prófið á mánudaginn. Er þetta einhvers konar ígildi samræmdu prófanna sem voru hér áður fyrr? Þetta er auðvitað töluvert annað. Áherslan núna er að vera með þetta símat þannig að það sé hægt að fylgjast með stöðunni og líka hvernig framvindan er,“ segir Þórdís Jóna. Þá verður hægt að greina betur hvaða börn þurfa á aukinni aðstoð að halda og finna þau sem þurfa meiri áskoranir. Er þetta próf líka til að bera saman skóla eða landshluta, hverfi? „Já, einmitt, það er kannski svona fegurðin í þessu. Auðvitað erum við fyrst og fremst að skoða framvindu hjá hverju og einu barni en síðan erum við alltaf með samanburðinn við landsmeðaltal,“ segir hún. Á næstu vikum verða lögð fyrir stöðu- og framvindupróf í öllum grunnskólum landsins. Markmið prófanna er að fá betri mynd af stöðu hvers og eins, og kerfisins í heild. Markmið prófanna er að bæta grunnskólanámið Miklar upplýsingar fáist með prófunum um stöðu grunnskólakerfisins. Foreldrar fái einkunnirnar sendar ásamt allri tölfræði inn á Ísland.is „Þannig að niðurstöðurnar úr prófunum munu sýna nemendum, foreldrum og auðvitað skólayfirvöldum og ríkinu hvernig menntakerfinu vindur fram því við munum bera þetta allt saman ár frá ári.“ Munið þið grípa inn í, eða menntamálayfirvöld, ef í ljós kemur að einhverjir skólar eru að standa sig mun verr en aðrir? „Já, við munum auðvitað vera með stuðning og sjá hvernig við getum stutt kennara í sínu starfi. Það er til einskis að mæla ef við ætlum ekki að nýta niðurstöðurnar til þess að okkur gangi betur,“ segir Þórdís Jóna.