Tvær íslenskar þáttaraðir sem eru í bígerð verða kynntar fyrir mögulegum fjárfestum á frönsku sjónvarpsþáttahátíðinni Séries Mania í mars. Aðeins fimmtán verkefni sem sækjast eftir fjármögnun eru vanalega til kynningar undir dagskrárliðnum Co-Pro Pitching Sessions. Aðstandendur þess verkefnis sem hlýtur mesta hylli dómara fær 50 þúsund evrur að verðlaunum. Það samsvarar rúmum 7 milljónum íslenskra króna en ætla má að eftirsóttara sé að landa samningi um fjármögnun á hátíðinni en að hneppa verðlaunin. Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Stella Blómkvist var á sínum tíma kynnt á Séries Mania-hátíðinni. Þáttaraðirnar tvær sem kynntar verða í mars byggja á íslenskum glæpasögum líkt og Stella Blómkvist. Bárust 400 umsóknir frá 65 löndum Séries Mania-hátíðin er haldin í Lille í Frakklandi á ári hverju en hún var stofnuð árið 2010. Að kynna verkefni á hátíðinni gefur framleiðendum tækifæri á að kynnast öðrum framleiðendum, dagskrárstjórum, fjárfestum og öðru lykilfólki í bransanum. Í ár bárust 400 umsóknir um þátttöku í Co-Pro Pitching Sessions frá 65 löndum. Þá segir á vefsíðu Séries Mania að nú hafi í fyrsta sinn borist umsóknir frá Palestínu, Kirgistan, Kýpur, Úrúgvæ, Panama og Malasíu. Hátíðin verður haldin 20.-27. mars. Þáttaraðirnar sem komust að í ár eru frá Íslandi, Lettlandi, Kanada, Frakklandi, Belgíu, Ísrael, Þýskalandi, Bretlandi, Finnlandi, Kirgistan, Spáni, Chile, Ítalíu og Suður-Afríku. Til viðbótar við þær fimmtán sjónvarpsþáttaraðir sem keppast um verðlaun Co-Pro Pitching Sessions verður svissneska þáttaröðin Gold kynnt fyrir fjárfestum á hátíðinni. Hún keppir þó ekki um 50 þúsund evrurnar. Rannsóknarlögreglumaður á eftirlaunum Framleiðslufyrirtækið Glassriver kynnir á hátíðinni í ár sjónvarpsþáttaröðina Konrad. Hún byggir á bókum Arnalds Indriðasonar um rannsóknarlögreglumanninn Konráð en þáttaröðinni er lýst sem glæpatrylli. Framleiðandi er Andri Ómarsson og handritshöfundur er Andri Óttarsson en báðir eru þeir meðeigendur í Glassriver. Vísir greindi frá því í september að Glassriver hefði fest kaup á réttinum að glæpasögum Arnalds um Konráð. Á vef Séries Mania segir að Konrad fjalli um íslenskan rannsóknarlögreglumann á eftirlaunum sem þarf að glíma við fortíð sína og kljást við persónulega djöfla. Eiginkona sendiherra sem flækist inn í morðmál Framleiðslufyrirtækið TrueNorth kynnir þáttaröðina Death of a diplomat á hátíðinni sem byggir á bókinni Diplómati deyr eftir fyrrverandi forsetafrú Íslands, Elizu Reid. Kanadíska framleiðslufyrirtækið Blink49 Studios framleiðir seríuna ásamt TrueNorth. Eliza er íslensk-kanadísk og bókin er sömuleiðis með beina tengingu við Kanada. Þáttaröðinni er lýst sem glæpadrama. Framleiðendur eru Kristinn Þórðarson, Leifur Dagfinnsson, Virginia Rankin og Carolyn Newman. Handritshöfundur er Lynne Kamm. „Diplómati deyr fylgir eiginkonu kanadísks sendiherra eftir að morð á stórum viðburði á Íslandi færir hana óvænt í hlutverk óformlegs rannsakanda, sem reynir hvað hún getur til að svipta hulunni af sannleikanum og leysa málið með aðstoð vanmetins rannsakanda frá Íslandi,“ segir um Death of a diplomat á vef Séries Mania. Skáldsagan var gefin út í fyrra.