Bandaríski öngvarinn og lagahöfundurinn Neil Sedaka er látinn, 86 ára að aldri. Söngvarinn öðlaðist heimsfrægð á sjöunda áratug síðustu aldar og átti marga slagara á toppi vinsældarlista á sínum tíma, meðal annars lög á borð við Oh! Carol, Breaking Up Is Hard To Do og Bad Blood.