Verkmenntaskólinn á Akureyri þarf að vísa um helmingi umsækjenda um iðnnám frá, þar sem skólinn annar ekki eftirspurn. Skólameistarinn segir vonbrigði að fá ekki skýr svör um hvenær ný bygging rísi við skólann. Tæplega átta hundruð komust ekki í það iðnnám sem þeir vildu hér á landi á liðnu ári. Húsakostur nær allra verknámsgreina í Verkmenntaskólanum á Akureyri er löngu sprunginn. Nemar í byggðingariðn eyða talsverðum hluta síns náms á bílastæðinu, því aðstaða til að byggja innanhúss er of lítil. „Hér fer allt of mikill tími í að moka og sandbera og þótt að við viljum þjálfa nemendur við alvöru aðstæður þá er kannski fullmikið að menn geri hér lítið annað en að moka eða hálkubera frekar en að vera að vinna inni í húsunum,“ segir Benedikt Barðason, skólameistari VMA, í viðtali við fréttastofu. Í bifvélavirkjun er hver fermetri nýttur en aðeins hægt að vinna að tveimur bílum í einu. „Það er kannski tekið inn í þetta nám á tveggja, þriggja ára fresti. Eins og á við um svo margar aðrar greinar, rafeindavirkjun, matreiðslu, pípulagningar og múriðn, einfaldlega bara af því það er ekki pláss til að vera með nema einn hóp í einu á hverjum tíma,“ segir Benedikt. Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri sitja kennslustundir í gluggalausum kjallara og aðrir úti á bílastæði vegna plássleysis. Mörg hundruð er vísað frá verknámi hérlendis á hverju ári. Óvíst hvenær nýbygging rís Í maí 2024 undirritaði þáverandi ráðherra menntamála samning um fimmtán hundruð fermetra stækkun á verknámsaðstöðu skólans. Þá samþykktu ríki og sveitarfélög að fjármagna verkið. Stækkunin var hluti af átaki stjórnvalda til að efla iðnnám, alls ætti að byggja 12.000 fermetra, þá einnig við Menntaskólann á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Skólameistarar þessara skóla funduðu í ráðuneytinu á dögunum, þar sem húsnæðisvandi skólanna var ítrekaður. Búið er að hanna byggingu við VMA en óvíst hvenær hún rís.