Þrír karlmenn sæta ákæru fyrir frelsissviptingu og tilraun til ráns, með því að hafa svipt fjórða manninn frelsi og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að reyna að hafa af honum verðmæti. Mennirnir eru meðal annars grunaðir um að hafa slegið fórnarlamb sitt með felgulykli, ekið út að Gróttuvita og veitt manninum ítrekuð högg á meðan bílferðinni stóð. Meint brot áttu sér stað sumarið 2020, fyrir tæpum sex árum síðan, en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars næstkomandi.