Björgunarfólk að störfum á slysstað í Mílanó.AP/LaPresse / Stefano Porta Tveir létust og að minnsta kosti 38 eru slasaðir eftir að sporvagn fór af sporinu og klessti á hús í Mílanó á Ítalíu í gær. Svo virðist sem mannleg mistök hafi orsakað slysið en ökumaður sporvagnsins kveikti ekki á takka til að skipta um spor. Stuttu áður keyrði hann sporvagninn fram hjá stoppistöð án þess að stoppa. Sporvagninn er nýr og ökumaðurinn reynslumikill. Ökumaðurinn var fluttur á spítala með minniháttar áverka en hann sagði að hann hefði fundið til verkja áður en slysið átti sér stað. Samgöngumálaráðherrann Matteo Salvini harmar slysið og segir að það verði rannsakað.