Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, hefur lokið vitnaleiðslum fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem fóru fram í gær í New York í Bandaríkjunum. Clinton sagðist ekki hafa orðið vitni að neinu ólöglegu eða gert neitt ólöglegt sjálfur þegar hann var í samskiptum við Jeffrey Epstein. Myndbandsupptaka af vitnisburði Hillary Clinton fyrrum utanríkisráðherra og eiginkonu Bills, verður birtur í dag, laugardag, og vitnisburður Bills á næstu dögum. Vitnaleiðslur halda áfram í málinu á næstunni. Endurskoðandi og lögfræðingur Epsteins koma fyrir eftirlitsnefndina en þeir hafa ekki verið nafngreindir. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að fulltrúar Demókrata hafi einnig óskað eftir því að bandaríski viðskiptaráðherrann Howard Lutnick beri vitni fyrir eftirlitsnefndinni. Í viðtali við The NewYork Post í október sl. sagði hann að hann hefði slitið öll tengsl við Epstein 2005 þegar hann og Epstein voru nágrannar í New York. Í nýjustu gögnum sem birt voru í Epstein-málinu kemur fram að hann skipulagði frí með fjölskyldunni sinni í heimsókn á eyju Epstein, Little Saint James, árið 2012 , sem hann hefur síðan viðurkennt að hafa farið í.