Utan vallar: Himna­faðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars

Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti.