„Þetta voru orðnar hættu­legar að­stæður“

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, óttaðist um öryggi leikmanna á snævi þöktu gervigrasi í Árbæ í gær og ákvað að hætta leik í hálfleik. Hann harmar að dómari leiksins hafi ekki gripið í taumana og að Fylkismenn hafi ekki viljað fresta leiknum í ljósi veðurspárinnar.