Á síðustu árum hefur húsnæðiskostnaður hækkað langt umfram það sem margir ráða við. Samt hafa reglur um stuðning ekki alltaf fylgt þessari þróun. Afleiðingin er sú að fólk - þrátt fyrir svipaðar aðstæður og áður, dettur út úr kerfinu vegna þess að viðmiðin eru orðin úrelt. Í slíkum aðstæðum verða stuðningskerfi að vera í takt við raunveruleikann – annars missa þau marks.