Skolfið á beinunum?

Merkileg grein birtist í gær á Vísi eftir Sverri Pál Einarsson, forseta ungliðahreyfingar Viðreisnar, þar sem hann sagði andstæðinga inngöngu í Evrópusambandið skjálfa á beinunum vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um Evrópumálin á sama tíma og hann kaus sjálfur að grípa til þess örþrifaráðs að uppnefna þá og saka um annarlegar hvatir í stað þess að færa efnisleg rök fyrir eigin málstað. Seint verður þannig sagt að greinaskrifin séu til marks um mikla yfirvegun.