Sjáðu: Körfurnar sem tryggðu Íslandi stórfenglegan sigur

Hér fyrir ofan má sjá allar íslensku körfurnar eftir að liðið lenti 21 stigi undir. Elvar Már Friðriksson var gjörsamlega stórkostlegur í leiknum og fór hamförum á lokamínútunum. Elvar skoraði 34 stig í leiknum, átti fjögur fráköst og sex stoðsendingar. Hann hitti úr sex af sjö þristum og skoraði körfuna sem tryggði sigurinn á lokasekúndubrotinu. Ísland mætir Litáen ytra á mánudaginn kemur í fjórða leik liðsins í þessum undanriðli. Sem stendur er liðið á toppi riðilsins með fimm stig eins og Ítalía en Litáen og Bretland eru þar á eftir með fjögur stig.