Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona og söngkona með meiru greindist með MS-sjúkdóminn árið 2023 og segist ekki eiga afturkvæmt á sviðið. Hún segir sjúkdóminn af þeirri gerð sem læðist aftan að manni. Hún er með skertan mátt í hægri hlið líkamans og haltrar en segist heppin og einblína á það jákvæða.