Mikil endurnýjun verður á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí sem verður kynntur síðdegis. Tveir af reynslumestu borgarfulltrúunum verða ekki í framboði og samkvæmt heimildum fréttastofu verða fótboltamaður og leikari meðal sex efstu. Endurnýjun hefur legið í loftinu Talsverð leynd hefur verið yfir skipan listans. Hildur Björnsdóttir er óskoraður oddviti, eftir að hún var ein um hituna í leiðtogaprófkjöri í byrjun árs og legið hefur í loftinu að talsverð endurnýjun yrði á listanum. Flokkurinn er með sex fulltrúa í borgarstjórn og samkvæmt heimildum fréttastofu verða fjórir þeirra aftur á lista. Auk Hildar eru það Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sem síðast var í 2. sæti en er nú í því fjórða, Björn Gíslason sem var í 5. sæti og er nú í því 10. og Friðjón Friðjónsson sem var í 6. sæti og verður nú í því 11. Bjarni númer tvö og Brynjar sá þriðji Heimildir fréttastofu herma að Bjarni Guðjónsson viðskiptafræðingur og fyrrverandi knattspyrnumaður og -þjálfari verði í 2. sæti, Brynjar Níelsson fyrrverandi alþingismaður í 3. sæti, Rúnar Freyr Gíslason leikari í 5. sæti og Sigrún Ásta Einarsdóttir í því sjötta. Þá herma heimildir að Albert Guðmundsson, formaður Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, skipi 7. sætið. Kjartan og Marta verða ekki á lista Samkvæmt heimildum fréttastofu verður Kjartan Magnússon, sem verið hefur borgarfulltrúi, með hléum frá aldamótum, ekki á listanum og heldur ekki borgarfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir sem verið hefur viðloðandi borgarmálin í 20 ár. Uppstillingin var í höndum 15 manna kjörnefndar Varðar og samkvæmt heimildum fréttastofu er mikil ánægja með listann innan raða sjálfstæðismanna sem telja hann sigurstranglegan. Ekki búist við öðru en samþykkt Áður en listinn verður kynntur síðdegis í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll verður fundur fulltrúaráðs flokksins þar sem skipan listans verður borin undir atkvæði og ekki er búist við öðru en að að uppstillingin verði samþykkt.