Herir Ísraels og Bandaríkjanna hófu loftárásir á Íran rétt um klukkan sex í morgun að íslenskum tíma. Árásunum hefur aðallega verið beint að Tehran, höfuðborg landsins, en einnig á borgirnar Karaj, Kermanshah, Qom og Isfahan. Stjórnvöld í Íran hafa skotið flugskeytum að Ísrael og bandarískum herstöðvum í nágrannaríkjunum. Fyrstu árásunum var beint að heimili Ayatollah Ali Khameini, æðsta klerks Íran. Ekki er vitað hvort hann var staddur á heimili sínu þegar árásirnar voru gerðar. Seinni árásum var beint að hernaðarmannvirkjum, byggingu leyniþjónustunnar, kjarnorkustofnun Írans og á ráðuneyti. Íranar svöruðu með árásum Stuttu eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásirnar heyrðust sprengingar í Norður-Ísrael þar sem eldflaugar Íran voru skotnar niður. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í árásum Íran. Írönsk stjórnvöld segja að 40 hafi verið drepnir í árásum ísraelska hersins á stúlknaskóla í Hormozgan-héraði í suðurhluta Íran. 48 hafi slasast í árásinni og óttast sé að fleiri muni látast af sárum sínum. Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja að loftvarnakerfi hafi gripið flaugarnar frá Íran en að brot hafi fallið á íbúahverfi í Abu Dhabi þar sem einn beið bana. Þá hafa líka heyrst sprengingar í Dúbaí. Írönsk stjórnvöld hafa sagt að árásum Bandaríkjanna og Ísrael verði svarað af fullum krafti. Þau ásaka Bandaríkin um að gera árásir á meðan viðræður um kjarnorkusamning voru enn í gangi. Bandaríkin og Íran hafa átt í viðræðum að undanförnu um kjarnorkuvopnaáætlun Írana. Þeir segja hana snúast um borgaralega notkun kjarnorku en Bandaríkin hafa lýst yfir ótta um að þeir hyggist smíða kjarnorkusprengjur. Markmiðið að koma klerkastjórninni frá völdum Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael segja markmiðið með árásunum að koma í veg fyrir að Íran komist yfir kjarnavopn og að koma klerkastjórn Írans frá völdum. Trump lýsti því yfir í ávarpi til bandarísku þjóðarinnar í morgun að stórtækar hernaðaraðgerðir væru hafnar í Íran. Trump hvatti íbúa í Íran til þess að leita í öruggt skjól meðan á árásunum stæði en hvatti þá einnig til þess að taka völdin af ríkisstjórninni að þeim loknum. Bandaríkjaher hefur safnað stórum herafla á hafi úti við Íran síðustu daga svo útlit var fyrir að árás væri yfirvofandi.