Gylfi Þór leiðir Við­reisn í Mos­fells­bæ

Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson rekstrarráðgjafi og varaþingmaður og í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Listinn var staðfestur á félagsfundi nú í morgun.